50. fundur
fjárlaganefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 23. mars 2020 kl. 18:15


Mætt:

Willum Þór Þórsson (WÞÞ) formaður, kl. 18:15
Haraldur Benediktsson (HarB) 1. varaformaður, kl. 18:15
Inga Sæland (IngS) 2. varaformaður, kl. 18:15
Ágúst Ólafur Ágústsson (ÁÓÁ), kl. 18:15
Birgir Þórarinsson (BirgÞ), kl. 18:15
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG) fyrir Steinunni Þóru Árnadóttur (SÞÁ), kl. 18:15
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 18:15
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF), kl. 18:15
Páll Magnússon (PállM), kl. 18:15
Þorsteinn Víglundsson (ÞorstV), kl. 18:15

Nefndarritari: Ólafur Elfar Sigurðsson

Bókað:

1) 695. mál - fjáraukalög 2020 Kl. 18:15
Fundurinn var fjarfundur og voru allir tengdir fundinum í gegnum fjarfundabúnað, sbr. afbrigði sem veitt voru skv. 95. gr. við 17. og 22. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, á þingfundi 12. mars sl.
Til fundarins komu Pétur Þ. Óskarsson og Bergþóra Halldórsdóttir frá Íslandsstofu.
Kl. 18:35. Jóhannes Þór Skúlason og Benedikt S. Benediktsson frá Samtökum ferðaþjónustunnar.
Kl. 19:24. Elías Bj. Gíslason frá Ferðamálastofu.
Kl. 19:39. Helga Jónsdóttir frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Gestirnir fóru yfir umsagnir sínar og svöruðu spurningum nefndarmanna um efni þeirra.

2) Önnur mál Kl. 20:09
Fleira var ekki gert.

3) Fundargerð Kl. 20:10
Afgreiðslu fundargerðar var frestað.

Fundi slitið kl. 20:11